Sigríður sagðist áreiðanlega hafa verið með athyglisbrest í sinni löngu liðnu æsku, en hún er að verða áttræð. Hallgerður sagðist þá hafa alltaf verið ógurlega leiðinleg. Við sem höfum þekkt þær í sjötíu ár munum mætavel að þær voru báðar bráðskarpar og skemmtilegar. Það er ekki ein heldur öll vitleysan sem okkur getur dottið í hug. En hvað segir þú, mín kæra, sem lest þetta, hvort sem þú átt marga eða fáa áratugina að baki? Þú varst áreiðanlega yndisleg – og heyrðir það ábyggilega staðfest oft og mörgum sinnum. En ef furðulegar hugsanir sitja um okkur skulum við syngja úr ljóðum Jesaja: Vaknaðu og vertu sterk og spariklædd. Hristu af þér rykið og rístu upp. Jes. 52. 1-2 Við erum yndislegar, njótum þess.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir