Jesús þjáist sjálfur í öllum sem þjást. Hann þekkir af eigin raun þjáninguna og ofbeldið sem birtist á Golgata. Ofbeldi er líkt og mengun í samfélagi kristinna manna. Vinnum gegn ofbeldinu. Stöndum saman, tölum saman og finnum með hjálp Guðs leið til að vinna gegn hvers konar ofbeldi á heimsvísu. Við biðjum Guð um að blessa okkur á þeirri vegferð og við biðjum hann einnig um að vera með öllum þeim er þjást vegna trúar sinnar.
Bestu kveðjur, Hulda Hrönn M. Helgadóttir