Við höldum áfram að vera mildar og máttugar. Óskum hver annarri árs og friðar. Og þökkum fyrir dýrmæta samveru og samhug á árinu. Við styrkjum og styðjum starfið með nærveru og með því að fylgjast með því og hafa áhuga á því. Þegar nýtt ár byrjar getum við hugsað til okkar eigin lífs og litið um öxl og fram á við. Allt í kærleika og friði hjarta okkar. Jesús sagði okkur að sýna sjálfum okkur umhyggju, sömu alúðina og við viljum sýna öðrum og fá líka frá þeim.
Blíðar kveðjur, Auður Eir