Tvær vinkonur okkar
Tvær vinkonur okkar í hverfinu hafa fallið frá, Þuríður Bergmann og Vilborg Dagbjartsdóttir.
Þuríður bjó úti í Þingholtsstræti í húsi sem hún gerði upp fyrir áratugum af miklu hugrekki og
ræktaði garð sem var ævintýri. Hún var með fyrstu konum í Reykjavík til að annast glugga-
útstillingar. Hún bauðst til að lána okkur stólana sína þegar við áttum ekki nógu marga fyrir allar
konurnar sem komu til okkar. Við kölluðum hana alltaf Þuríði á 13.
Vilborg bjó hérna niðri við Bókhlöðustíginn og kom stundum inn til okkar eða við spjölluðum
á gangstéttinni. Hún sagði að það væri mesti misskilningur að vinstrafólk eins og hún væri ekki
trúað, hún hefði alltaf farið í kirkju. Vilborg var kennari og þjóðfræg fyrir fallegu ljóðin sín.