Sýn okkar á Jesús
Jesús fylltist af fagnandi gleði Heilagrar anda og vegsamaði Guð. (Lúk.10:21a)
Flestar gerum við okkur í hugarlund mynd af Jesús. Hver er þín mynd? Er hann glaður, leiður, sorgmæddur, þjáður? Brosir hann með augunum, blíðu brosi, með umhyggju, kærleika, miskunn, vináttu o.s.frv. eða er hryggð í svip hans? Ritningarversið hér að ofan minnir okkur á að Jesús var einnig glaður þrátt fyrir að flest öll málverk af honum sýni annað. Og hann kom til að flytja fátækum gleðilegan boðskap (Lk.4:18b). Getur ekki verið að Guð brosi til þín og sé ánægð með þig? Taktu á móti gleðinni. Leyfum gleði Heilagrar andar að fylla líf okkar, lofum Guð og brosum út í eitt, því brosið eykur gleði okkar. Og gleði Guðs er styrkur okkar (Nem.8:10c). Jesús sagði: Þetta hef ég talað til yðar til þess að fögnuður minn sé í yður og fögnuður yðar sé heill. Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður.” (Jóh.15:11-12)
Við biðjum:
“Metta oss að morgni með miskunn þinni, að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora.” (Sálm.90:14)