2. 1 – 13 Tungutalið á hvítasunnunni
Seinna varð annars konar tungutal iðkað sums staðar í nýstofnaðri kirkjunni eins og sést í Korinþubréfinu. Það er enn talað tungum í sumum hlutum kristinnar kirkju eins og við þekkjum í Hvítasunnusöfnuðinum hér og berum sjálfsagða virðingu fyrir. En undrið á hvítasunnunni var einstakt. Jesús gaf mátt sinn, skilning og kærleika eins og hann hafði lofað. Svo að fólkið hans gat framkvæmt það sem hann fól því. Það gat lífað í trúnni á hann, treyst honum í gleði og ofsóknum, fyllst kjarki og breitt trúna út um alla veröldina. Undur hvítasunnunnar gerist þess vegna líka núna í hvert skipti sem þau sem heyra fagnaðarerindið heyra að það er talað til þeirra. Og undur hvítasunnunnar endurtekur sig alltaf þegar fólk Krists lifir í vináttu hans. Heilagur andi heldur áfram að gefa kristnu fólki sínu mátt, kjark og ást til að lifa í sífellri siðbót.