Postulasagan 2. 1 -13 – Hvítasunnan
Hvítasunnan var komin. Hún var hátíð Ísraels til að minnast þess þegar lögmálið var gefið á Sínaí. Hvítasunnan er hátíð kristinnar trúar af því að þá var kirkjan stofnuð. Þau voru öll í loftstofunni. Þá gerist undrið sem Jesús hafði heitið þeim en þau gátu ekki ímyndað sér hvernig yrði. Heilagur andi birtist með gný af himni og fyllti húsið. Þeim birtust eldtungur sem settust á þau öll svo þau töluðu útlend tungumál sem þau kunnu ekki en andinn gaf þeim. Fólk streymir að og öll heyra talað á sinni eigin tungu. Það var undrið mikla, gjöf andans.