Nú birtist okkur enn einu sinni tækifærið til að
hugsa djúpar hugsanir. Það er auðvitað alltaf
fyrir hendi og við þiggjum það á einn eða annan
veg á hverjum degi. Og núna megum við íhuga
hina miklu atburði páskanna, pálmasunnudags,
skírdags, föstudagsins langa og páskamorguns.
Við megum spegla daga heimsins í þeim öllum. Og
okkar eigin daga, þá sem bærast áfram í misjöfnu
ásigkomulagi og með misjöfnum hraða eins og við
vitum svo mætavel. Dagarnir fyrir páska sýna
okkur misjafnar hugsanirnar sem bærðust í hjarta
sögufólks; skammvinna hollustu þeirra sem veifuðu
pálmagreinunum, misskilning foringjanna sem
heimtuðu krossfestinguna og kæruleysi fólksins sem
lét hafa sig út í að slást í hópinn. Og hugleysi
Pílatusar sem dæmdi Jesúm gegn betri vitund. Sorgina
sem fyllti Jesúm þegar honum fannst Guð hafa yfir-
gefið sig.
Nú skulum við nota tækifærið og staldra og hugsa.
Og biðja Guð að gefa okkur djúpar hugsanir. Svo að
við sjáum einu sinni enn í gleði og þakklæti að við erum
með í páskagleði hópsins á fyrsta páskamorgninum sem
sá og vissi að Jesús er upprisinn, hann er Frelsarinn,
alltar veraldarinnar og okkar allra.
Gleðilega páska, Auður