Í messunni Kvennakirkjunnar í Dómkirkjunni nú 6. apríl söng Anna Sigga sálm Vilborgar Davíðsdóttur Fyrir ljósi myrkrið flýr. Þar segir Vilborg frá huggun Guðs sem við eigum vísa í sorg okkar. Aðalheiður Þorsteinsdóttir söngstjóri okkar samdi lagið við sálminn og okkur þótti hvort tveggja og flutningurinn mikill viðburður og fögnuðum vinkonum okkar hjartanlega. Á myndinni sjást Aðalheiður og Vilborg í góðum hópi kvenna.