Heimilisfang hennar er að Þingholtsstræti 17, 101 Reykjavík. Kvennakirkjan heldur guðþjónustur í hinum ýmsu kirkjum þjóðkirkjunnar, oftast í Reykjavík, en líka úti á landi. Kvennakirkjan hefur líka haldið guðþjónustur í öðrum löndum og hefur tengsl við konur erlendis sem byggja starf sitt á kristinni trú.
Guðþjónustur Kvennakirkjunnar mótast af kvennaguðfræði. Við tölum um þau málefni sem snerta sjálfar okkur, höfum bænastundir þar sem við lesum bænir sem allar sem vilja skrifa þegar þær koma í messuna, túlkum texta Biblíunnar svo að þeir verði okkur sem skiljanlegastir og breytum þeim úr textum sem ávarpa menn í texta sem ávarpa konur. Við tölum um Guð sem vinkonu okkar. Margar konur koma fram í messunum. Við höfum lagt okkur eftir nýjum lögum og sálmum og konur hafa ort fyrir okkur og þýtt nýja sálma með boðskap Kvennakirkjunnar. Eftir messur er kaffi í safnaðarheimilum kirknanna svo að við getum spjallað saman í næði.
Kvennakirkjan hefur gefið út sex bækur: Vináttu Guðs, bók um kvennaguðfræði eftir séra Auði Eir Vilhjálmsdóttur, Vinkonur og vinir Jesú, valdir textar úr Nýja testamentinu á máli beggja kynja, Gleði Guðs, bók um tilfinningar daglegs lífs, Bakarí Guðs, bók um lúterska guðfræði og framtíð kirkjunnar, Göngum í hús Guðs
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir og séra Arndís G. Bernahardsdóttir Linn eru prestar Kvennakirkjunnar. Söngstjóri Kvennakirkjunnar er Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Upplýsingafulltrúi er Elísabet Þorgeirsdóttir.