Að kunna að lesa gefur konum völd og áhrif. Það ógnar karlaveldinu. Í umræðunni í haust um seinni heimstyrjöldina kom fram að orsakanna fyrir henni væri m.a. að leita í vanmætti ríkjandi karla til að horfast í augu við eigin karlmennsku. Því þarf að huga að því þegar rætt er um trúarbragðadeilur hvort verið sé að fela sig á bak við trúarbrögðin þegar aðrar hvatir liggja að baki og málið snýst um völd eða andlegan sjúkleika eins og siðblindu.
Kristnin ógnar heiminum í dag. Því kristin trú gefur grunn til að standa á og gerir fólk sterkt. Hún gefur mannskilning sem er virðingarverður. Hún gefur siðfræði sem byggir á kærleika, og stendur gegn hinu illa, græðgi og sjálfsmiðlægni. Hún gefur lífshamingju.
Með bestu kveðjum, Hulda Hrönn M. Helgadóttir