Fyrsta guðþjónusta Kvennakirkjunnar á þessu ári verður í Langholtskirkju, sunnudaginn 18. janúar kl. 14. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar. Ásta Kr. Jónsdóttir segir frá trú sinnni. Olga Lilja Bjarnadóttir syngur. Aðalheiður Þorsteinsdóttir leiðir sönginn með kór Kvennakirkjunnar. Kaffi í safnaðarheimilinu. Þuríður Magnúsdóttir er kaffimóðir. Þær sem sjá sér fært að færa meðlæti fá alúðarþakkir.