Hættum að ganga alltaf í sömu hringina, hættum að tipla á yfirborðinu, hættum að láta eins og við vitum ekki hvers við iðrumst í rauninni.
Nefnum það. Segjum Guði það. Hlustum á hana fyrirgefa okkur. Hlustum á hana endurnýja okkur. Fyrirgefum sjálfum okkur og njótum þess hvað
við erum yndislegar vinkonur Guðs.
Blíðar kveðjur, Auður