Kvennakirkjan heldur guðþjónustu í Laugarneskirkju sunnudaginn 23. september klukkan 20. Við tölum um litina í lífinu í litadýrð kristinnar hversdagsgleði okkar. Séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir predikar, Aðalheiður Þorsteinsdóttir leiðir okkur í yndislegum sálmasöng við blóm og kertaljós og Elísabet Þorgeirsdóttir les bænir okkar. Drekkum kaffi og tölum saman. Mikið verður gaman. Komdu endilega.