Jólaguðþjónusta í Háteigskirkju sunnudaginn 27. desember klukkan 14, klukkan tvö
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar. Hallfríður Ólafsdóttir leikur á flautu. Kristín Stefánsdóttir syngur jólasálma. Við syngjum allar jólasálma í jólaljósum kirkjunnar og Aðalheiður Þorsteinsdóttir og kór Kvennakirkjunnar leiða okkur. Á eftir drekkum við jólakaffi og þær sem sjá sér fært koma með góðgerðir og við þökkum þeim allar innilega.