Eftir mörg ár í dýflissunni er náð í Samson. Filistar héldu mikla sigurhátíð og létu færa sér hann til að hæða hann, blindan en með hármakka. Og þá ákallar hann Guð, segir ” minnstu mín í þetta eina skipti”. Hann fálmar í burðarsúlurnar, neytir allra krafta – og þær gefa eftir !!! Þakið, sem er þéttsetið fólki fellur og á alla veislugesti, mörg þúsund manns, sem þar lifa sinn síðasta dag.
Bestu kveðjur, Dalla Þórðardóttir