Guðþjónusta í Dómkirkjunni sunnudaginn 6. desmeber klukkan 14, klukkan 2. Séra Arndís Linn predikar í hlýju sinni og fögnuði. Við syngjum jólasálma með Öllu, höfum kertaljós og syngjum mikið í gleði hjartans og eftirvæntingu. Svo höfum við kaffi á kirkjuloftinu og þær sem sjá sér fært koma með bakkelsi og við hinar þökkum þeim kærlega.