Við höldum áfram að rekja bókina okkar Göngum í hús Guðs.
Á eftir upphafsorðunum koma þakkir fyrir fyrirgefningu Guðs. Þessi fyrirgefningarbæn var samin í Kvennakirkjunni árið 2021:
Guð fyrirgefur okkur. Við skulum hætta að burðast með byrðar sem Guð hefur tekið af okkur. Við skulum taka á móti gleðinni sem Guð gefur okkur. Þorum að vera reisnarlegar og glaðværar. Heyrum hvað Guð sagði fólkinu sínu á leið þess til fyrirheitna landsins:
Nú legg ég fyrr þig veg lífsins og veg dauðans. Veldu nú lífið.
Blíðar kveðjur, Auður Eir