Góðu vinkonur. Þá förum við að breyta ögn um lífsstíl, föt og hvaðeina.
Það gerist alltaf með haustinu eins og við höfum allar vitað árum saman.
Nú kveikjum við á kvöldljósum og njótum lífsins örlítið öðru vísi
en í síbjörtu sumrinu.
Ég óska okkur góðra daga með góðum hugsunum og hugrekki til að
lifa lífinu í takt við það sem gerist. Og láta það sem gerist verða
sem allra best og skemmtilegast eftir því sem við höfum tök á.
Blíðar kveðjur, Auður Eir