Við eigum ýmis kjörorð í Kvennakirkjunni sem spretta upp úr guðfræðinni sem sprettur upp úr samtölum okkar kringum furuborðið á mánudagskvöldum, en líka víðar og oftar. Eitt kjörorðið er orðin fjögur: Fyrirgefning, frelsi, friður og femínismi. Svo bættum við framtaksseminni við. Við hugsum: Fyrirgefningin er undirstaða lífs okkar, fyrirgefning Guðs sem leyfir okkur að fyrirgefa sjálfum okkur. Í fyrirgefningunni verðum við frjálsar og í frelsinu eignumst við frið. Og í friði til að vera við sjálfar eignumst við djúpa og glaðlega löngunina til að vinna að femínismanum. Og vera framtakssamar yfirleitt. Því það er í því sem við gerum í daglegu lífi okkar sem við finnum blessun kristinnar trúar okkar. Finnst þér það ekki?
Blíðar kveðjur, Auður