Þetta er kínversk speki. Jóhann Hannesson, kristniboði í Kína, prestur og prófessor við guðfærðideildina hér, bað okkur stúdenta að íhuga hana vandlega. Sjáðu varfærnina, það er ekkert fullyrt, ekki sagt að allt verði áreiðanlega í þessu líka fína. En talið að flest muni hafast alla vega nokkurn veginn. Hvað finnst þér um þetta? Það mæta sem oftast einhver óvissuefni í daganna rás. Þá er ekki slæmt að hafa setninguna yfir. Og svo kemur í ljós að þetta varð einmitt svona. Af því að Guð hefur alltaf eftirlit með okkur, bæði í kínverskri speki og kristinni trú.
Blíðar kveðjur, Auður Eir