Við höldum áfram að ræða um rétt eða bann við kirkjustundum með börnum á skólatíma. Í Morgunblaðinu 16. desember síðast liðinn er Fréttaskýring Önnu Lilju Þórhallsdóttur.
° Þar segir að allur gangur sé á því hvort sveitarfélög hafi reglur um kirkjuferðir barna á skólatíma. ° Lítið er um athugasemdir frá foreldrum um þetta til sveitarfélaga, skóla eða landssamtaka foreldra um samstarf heimila og skóla.
° Skóli í Reykjavík sendi foreldrum tölvupóst um að óskað væri eftir því við prestinn að ekki skyldi tala um trú.
° Sigurlás Þorleifssona skólastjóri í Vestmannaeyjum sagði að kirkjuferðin væri hugsuð sem sögustund.
° Halldór Halldórsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins segir að kirkjuheimsóknir á skólatíma stangist ekki á við reglur Mannréttindaráðs um samskipti skóla og trúfélaga. Þar er sagt að það eigi að virða fornar hefðir. Það á ekki að takmarka frelsi allra barna þótt foreldrar sumra barna vilji ekki að þau fari í kirkju. Foreldrar geti sagt til ef þau vilja ekki að barnið fari í kirkju.
° Í skólum í Garðabæ, Kópavogi og á Seltjarnarnesi er börnunum sem fara ekki í kirkju boðið upp á aðra samveru.
° Danska menntamálaráðuneytið telur það í fullu samræmi við dönsk grunnskólalög að jólahefðir séu hluti af skólastarfi.
° Norska menntamálaráðuneytið segir að ef skólar vilja fara með nemendur í kirkju á skólatíma þurfi samráð foreldra og börn skuli skrá sig til kirkjuferðarinnar.
Hvað segir þú?
Blíðar kveðjur, Auður Eir