Við flytjum bænir okkar í messunum, skrifum þær á miða sem eru lesnir upphátt.
Ein af bænunum sem við flytjum fyrir bænastundina er þessi:
Við þökkum þér elsku Guð vinkona okkar fyrir að vera hjá okkur og hlusta á bænir okkar. Þú veist hvernig okkur líður, þú veist hvað er að gerast í lífi okkar. Þú þekkir sorg okkar og áhyggjur og gleði okkar, þakklæti og hamingju. Við vitum að þú heyrir bænir okkar. Í Jesú nafni, Amen
Blíðar kveðjur, Auður Eir