Messa í Neskirkju 24. nóvember
Næsta messa Kvennakirkjunnar verður í Neskirkju sunnudaginn 24. nóvember klukkan 20. Séra Bára Friðriksdóttir predikar. Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar sálmasöng og Anna Sigríður Helgadóttir syngur fyrir okkur. Við sitjum í hring og sjáum hver aðra, njótum samverunnar með Orði Guðs í predikuninni, söng og bæn. Eins og alltaf. Það er alltaf svo gott og svo yndislegt að setjast á eftir og spjalla yfir kvöldkaffinu. Hlökkum til að hittast.