About Arndis

This author has not yet filled in any details.
So far has created 454 blog entries.

Trú, skoðunarfrelsi og mannréttindi – Málþing í safnaðarheimili Háteigskirkju

Málþing Samráðsvettvangs trúfélaga ,,Trú, skoðunarfrelsi og mannréttindi“ verður fimmtudaginn 27. febrúar í safnaðarheimili Háteigskirkju.  Málþingið er haldið í samvinnu við Trúarbragðafræðistofu Hugvísindasviðs Háskóla Íslands.  Fundarstjóri er Margrét Steinardóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.  Öllum heimill ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir.

Fyrirlesarar verða Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður,  Jón Ólafsson, heimspekingur og prófessor við Háskólann á Bifröst og Arnfríður Guðmundsdóttir, guðfræðingur og prófessor við Guðfræði-og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Undanfarin ár hefur verið rætt um árekstra milli trúarhefða og mannréttinda. Ágreiningsefnin varða m.a. kvenréttindi, málefni samkynhneigðra, vígsluathafnir fyrir börn, menntun og tjáningarfrelsi. Markmiðið með málþinginu er að draga fram helstu árekstrana og vega þá og meta út frá lögfræðilegum, heimspekilegum og trúarbragðafræðilegum sjónarhóli.
Spurt verður:   Hvað nær trúfrelsi langt? Hvernig er unnt að viðhalda jafnvægi á milli trúariðkunar og mannréttinda? Getur samfélagið samþykkt starfsemi trúfélaga eða trúarbragða sem hafa að geyma kenningar eða stefnur sem talist geta á skjön við almenn mannréttindi? Hvaða úrræði eru fyrir hendi þegar árekstrar eiga sér stað? Hversu langt nær tjáningarfrelsið? Hvað getur flokkast undir hatursorðræðu? Hvernig ber að bregðast við haturshreyfingum?
Aðgangur er ókeypis og allt fólk velkomið – og nú er gott tækifæri fyrir konur Kvennakirkjunnar til að víkka sjóndeildarhringinn.  Komum sem getum !

By |25 febrúar 2014 23:45|Fréttir|

Afmælismessa

Afmælismessa Kvennakirkjunnar verður í Neskirkju sunnudaginn 16. febrúar kl. 14:00. Athugið breyttan messutíma. Hvers vegna er ég í Kvennakirkjunni? Þórunn Sveinbjarnardóttir.  Berta Dröfn Ómarsdóttir syngur einsöng og kór Kvennakirkjunnar syngur undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.  Séra Arndís G. Bernhardsdóttir Linn predikar. Afmæliskaffi á eftir. Verum innilega velkomnar

By |6 febrúar 2014 19:49|Fréttir|

Kynvitund, kynverund og transfólk

Námskeið Kvennakirkjunnar í febrúar og mars kallast Kynvitund, kynverund og transfólk.  Á þessu námskeiði fáum við tækifæri til að kynnast nýjum hugmyndum sem enn eru lítið kynntar hér.  Þær fjalla um kynvitund og kynverund og fólk sem finnst það hafa fæðst í röngum líkama.  Suður í Þýskalandi er nú mögulegt að bíða með að skrá kynferði barna þar til það kemur í ljós hvers kyns þau eru. Námskeiðið er í Þingholtsstræti 17,  fjögur mánudagskvöld og stendur frá 19.30 til 21 – frá hálf átta til níu um kvöldið og kostar 4000 krónur

Mánudagskvöldin 17. og 24. febrúar
talar dr. Sólveig Anna Bóasdóttir kennari við guðfræðideild HÍ um kynvitund og kynverund og transfólk.

Mánudagskvöldin 3. mars
talar Svandís Anna Sigurðardóttir kynjafræðingur og jafnréttisfulltrúi HÍ. Svandís Anna  ræðir um kynja- og kynhneigðarkerfið, endursköpun á ríkjandi hugmyndum og jaðarsetningu hinsegin fólks, í tengslum við MA ritgerð hennar í kynjafræði þar sem hún gagnrýndi hvernig kynjakerfið byggir upp einungis tvö kyn sem þá útiloka/jaðarsetja trans fólk.
Mánudagskvöldið 10. mars
Ugla Stefanía Jónsdóttir og Örn Danival Kristjánsson frá Trans Ísland segja frá starfsemi félagsins og reynslu sinni af að fara í kynleiðréttingu.

Verum allar innilega velkomnar til þessa góða tækifæristil að kynnast því sem bráðum verður veruleiki hér  sem við þurfum að þekkja.

By |6 febrúar 2014 15:04|Fréttir|

Biblíuleg íhugun á stefnumóti við Guð

Næsta mánudagskvöld, 3. febrúar verður þriðja skiptið í námskeið Kvennakirkjunnar, Stefnumót  við Guð – Kristin íhugun og hugleiðsla. Þetta kvöld verður farið í Biblíulega íhugun, Lectio Divina sem er ævaforn íhugunaraðferð innan kristinnar hefðar þar sem íhugað er eftir textum Biblíunnar. Stefnumótið hefst kl. 19:30 og er haldið í Þingholtsstræti 17. Lýsingu á námskeiðinu í heild sinni má sjá hér að neðan. […]

By |30 janúar 2014 16:15|Fréttir|

Afmælismessa Kvennakirkjunnar

Næsta messa Kvennakirkjunnar er afmælismessa og verður hún haldin í Neskirkju Sunnudaginn 16. febrúar  kl. 14:00. Tökum eftir breyttum messutíma !

By |30 janúar 2014 15:45|Fréttir|

Næstu messur okkar verða kl.14

Við höfum rætt  vandlega um hugsanlega breytingu á messutíma, gá hvort sunnudagssíðdegin henti betur en kvöldin, nú meðan myrkrið er.  Það fellur í góðan jarðveg í umræðum að prófa þennan tíma.   Þess vegna verða þrjár næstu messur klukkan 14 á sunnudögum, hin fyrsta sunnudaginn 16. febrúar í Neskirkju við Hagatorg. 

By |30 janúar 2014 15:38|Fréttir|

Að hvíla í hendi Guðs

Það er svo gott að hvíla í hendi Guðs í önnum daganna. Vita að hún er alltaf með þér og réttir þér hönd sína til að styðjast við þegar þú þarft á að halda. Hún er alltaf með þér og gengur ýmist léttstíg við hlið þér eða heldur á þér í faðmi sínum, allt eftir því hvað það er sem þú ert að glíma við. Guð er besta vinkona sem hægt er að hugsa sér. Vöndum okkur að vera bestu vinkonur og vinir Guðs.

Elína Hrund Kristjánsdóttir

By |21 janúar 2014 21:27|Dagleg trú|

Messa í Laugarneskirkju

Fyrsta messa Kvennakirkjunna þetta árið verður í Laugarneskirkju, sunnudaginn 19. janúar kl. 20. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur og Anna Sigríður Helgadóttir syngur. Að venju verður boðið til messukaffis og  þær sem sjá sér fært að koma með meðlæti á kaffiborðið fá alúðar þakkir. Tökum frá tíma í dagsins önn og mætum í samfélag Guðs.

By |14 janúar 2014 19:22|Fréttir|

Stefnumót við Guð – Kristin íhugun og hugleiðsla

Skipuleggur þú stefnumót við Guð? Hefur þú áhuga á að dýpka samband þitt við Guð? Fjögurra kvölda námskeið Kvennakirkjunnar þar sem kristnar íhugunar- og hugleiðslu aðferðir verða kynntar og iðkaðar. Námskeiðið stendur yfir 4 mánudagskvöld, frá 20. Janúar til og með 10. febrúar í stofum Kvennakirkjunnar, Þingholtsstræti 17. Námskeiðið kostar 4000,- kr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn prestur Kvennakirkjunnar kennir fyrstu 3 kvöldin og Þóra Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur kennir síðasta kvöldið.

Með aldagömlum aðferðum kristinnar trúar lærum við að opna hjarta okkar og taka á móti Guði, í þögn og kyrrð og dýpka þannig  tengslin við Guð og þroska trú okkar.

20. janúar kl. 19:30. Með Guði í kyrrð: Kynning á aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) fyrri hluti
27. janúar kl. 19.30  Með Guði í kyrrð; Kynning á aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) seinni hluti
3. febrúar kl. 19:30  Með Guði í Biblíunni: Biblíuleg íhugun (lectio divina)
10. febrúar kl.19:30 Upppörvun og slökun með Þóru Björnsdóttur hjúkrunarfræðing

By |12 janúar 2014 15:38|Fréttir|

Fyrirætlanir til heilla

Um leið og við göngum til móts við nýja árið er gott að rifja upp fyrirheitin sem Guð hefur gefið okkur og við finnum um alla Biblíuna. Guð hefur lofað þér að fara á undan þér og vera með þér, hún ætlar hvorki að sleppa af þér hendinni né fara frá þér og þú þarft hvorki að óttast né missa móðinn. (5. M  31.8).  Og ekki nóg með það heldur hefur Guð líka í hyggju að gera stórkostlega hluti ;  Því að ég þekki sjálf þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með ykkur, segir Guð, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita ykkur vonarríka framtíð.  Jer 29.11.

Er það ekki dásamlegt veganesti að hafa inní nýja árið og nýju dagana sem koma á móti okkur?

Arndís Linn

 

By |12 janúar 2014 13:14|Dagleg trú|