Jólaguðþjónusta 28. desember kl.20
Jólaguðþjónustan verður í Háteigskirkju, miðvikudaginn 28. desember kl. 20þ
Séra Arndís G. Bernhardsdóttir Linn predikar
Við syngjum jólasálma með Aðalheiði Þorsteinsdóttur og kór Kvennakirkjunnar og vinkonur okkar flytja okkur jólatónlist
Anna Sigríður Helgadóttir
Kristín Stefánsdóttir
Ragnhildur Ásgeirsdóttir
og kórinn hennar
Við höldum jólakaffi í safnaðarheimilinu og þær sem sjá sér fært að koma með góðgerðir
njóta aðdáunar og þakklætis fyrir að gleðja okkur í spjallinu og vináttunni. Þetta verður stórkostleg guðsþjónusta orða og hljómlistar – ennþá betri ef þú kemur.
Hver er yfirskriftin yfir trú okkar?
Þetta sögðu konurnar sem hittast á mánudögum í Þingholtsstræti
Traust. Hvíld. Vissan um að Guð er með okkur og vinnur með okkur. Hún heyrir bænir okkar og við sjáum það strax eða seinna. Það er að taka eftir bænheyrslum án þess s að heimta að þær verði eins og við viljum. Það er að vera opnar fyrir anda Guðs og laða að okkur það sem er gott. Það er að hugsa ekki neikvæðar hugsanir heldur jákvæðar. Það er að láta trúna koma fram í því sem við gerum. Það er sjá að Guð er með okkur í öllum samskiptum okkar við annað fólk, góðum og flóknum. Það er að sjá […]
Fréttir af samstarfi
Annar fundurinn sem við höldum með Félagi prestvígðra kvenna og Örþingsnefnd þjóðkirkjunnar var mánudaginn 21. nóvember kl. 16.30 og þá fara námskeiðskonur okkar þangað og taka þátt í umræðunum.
Agnes biskup og Steinunn Arnþrúður prestur í Neskirkju kenndu okkur aðferðir til að ná niðurstöðum á fundum. Það var frábært og friðsælt og gott að sitja saman í loftstofunni á Biskupsstofu. Í janúar kemur Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona og segir frá málverkasýningu sinni sem er nú í Neskirkju.
Gleðilega aðventan
Ég fór að hlusta á Margréti Bóasdóttur söngmálastjóra kirkjunnar segja frá jólasálmum í ýmsum löndum. Það kom fram að hér væru aðventusálmar mun stillilegri í gleðinni en í ýmsum öðrum löndum.
Hvað segirðu um það? Kannski bara. En það er alveg óþarfi og við skulum alla vega vera glaðlegar bæði í aðventumessunni og öllu öðru. Þó það nú væri enda erum við jafnan glaðlegar í fasi og huga. Eða finnst þér það ekki líka?
Við vitum mætvel að aðventan er tími tilhlökkunarinnar. Við hlökkum til jólanna og hvað sem hver segir um amstrið og hégómann er þetta yndislegur tími og við getum hagað amstrinu eins og við viljum og við þurfum ekki að hafa nokkurn hégóma hjá okkur. Hlökkum bara til.
Enda eigum við það undursamlega tilhlökkunarefni að heyra fagnaðarerindið um að Guð er komin til okkar og orðin ein af okkur en enn yndislegri og trúfastari en við. Hún kom til að gefa okkur gleði og frið, létta af okkur fáránlegum hugsunum og gera okkur bjartsýnar og glaðværar, þrautseigar og þolinmóðar og allt sem við þurfum í mismunandi dögunum. Við treystum henni og gleðjumst í hjarta okkar og verðun okkur og öðrum til góðs.
Blíðar kveðjur, Auður
Aðventuguðþjónusta í Dómkirkjunni
Aðventuguðþjónusta Kvennakirkjunnar verður í Dómkirkjunni 4. desember kl. 20:oo . Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar. Við syngjum glaðlega jólasálma við kertaljós með Aðalheiði Þorsteinsdóttur og kór Kvennakirkjunnar. Aðventukaffi á kirkjulofti eftir messuna og meðlæti vel þegið. Verum hjartanlega velkomnar – enda erum við allar ómissandi.
Umræðufundur á biskupsstofu 21. nóvember
Önnur samkoma/umræðufundur FPK, Kvennakirkjunnar og Örþingsnefndar kirkjunnar. verður Mánudaginn 21.nóvember kl. 16:30 á 4.hæð á Biskupsstofu
Hvernig tölum við saman? Hvaða leiðir eru til samstöðu?
Agnes M. Sigurðardóttir biskup og Steinunn A. Björnsdóttir prestur fjalla um consensus aðerðina til fundarstjórnar, sem notuð hefur verið af Alkirkjuráðinu. Gerðar verða nokkrar léttar og skemmtilegar æfingar í samstöðu-fundarstjórn.
Guðþjónusta Kvennakirkjunnar í Seltjarnarneskirkju
Sunnudaginn 13. nóvember verður guðþjónusta í Seltjarnarneskirkju kl. 20.Séra Arndís G. Bernhardsdóttir Linn predikar. Við syngjum og syngjum alla messuna með okkar kæru Aðalheiði Þorsteinsdóttur og kór Kvennakirkjunnar
Drekkum kaffi á eftir í safnaðarheimilinu og þær sem sjá sér fært að færa góðgæti fá alúðarþakkir.
Traustið og hvíldin í trúnni
Við styrkjum hver aðra í trú okkar svo að við finnum alltaf að trúin er raunveruleiki daganna. Það er yndislegt eins og við allar vitum og gerir dagana einn eftir annan að góðum dögum.
Erfiðir dagar verða líka góðir í hjálpinni sem Guð gefur okkur. Það er mikil gjöf að komast í gegnum erfiðleika, það sem er óvænt og það sem við vildum að gerðist ekki. Við vitum af reynslunni að það gerist alltaf eitthvað í þá áttina við og við. Þeim mun gleðilegra er að eiga friðsama daga og skemmtilega daga og daga sem færa okkur óvænta gleði.
Við hittumst í Þingholtsstræti á hverjum mánudegi og tölum um trú okkar. Eitt skiptið bað ég þær í hópnum að segja hvernig þær lýstu trú sinni. Þær sögðu:
Traust. Hvíld. Vissan um að Guð er með okkur og vinnur með okkur. Hún heyrir bænir okkar og við sjáum það strax eða seinna. Það er að taka eftir bænheyrslum án þess að heimta að þær verði eins og við viljum. Það er að vera opnar fyrir anda Guðs og laða að okkur það sem er gott. Það er að hugsa ekki neikvæðar hugsanir heldur jákvæðar. Það er að láta trúna koma fram í því sem við gerum.
Það er að sjá að Guð er með okkur í öllum samskiptum okkar við annað fólk, góðum og flóknum. Það er að sjá hvað það er yndislegt að það er nóg í trú okkar að eiga Guð. Það er að sjá aðGuð er alltaf að skapa. Hún brallar svo, eins og Steinunn okkar Pálsdóttir segir.
Blíðar kveðjur, Auður
Nú er okkar tími
Við eigum tækifæri til að vera frjór jarðvegur, sem tekur við orði Guðs og lifir eftir
því. Skoðið þið ekki stundum gömul myndaalbúm? Þegar fáir áttu myndavélar, var vandað til þess þegar taka átti mynd; fólkið í húsinu er komið undir suðurvegg, auðvitað valinn blíður sumardagur. Stundum er myndin frá fermingardegi eða öðrum hátíðardegi.En stundum hefur hún verið tekin á virkum degi, húsfreyjan og stúlkurnar enn með svunturnar, karlmenn á skyrtunni, amma heldur á yngsta barninu, sem pírir augun við sólskini og framtíð.
Öll frátekin. Öll með sérstakt hlutverk og stað í tilverunni. Það er dygð að skila sínu hlutverki og vera trú eða trúr því sem manni er falið.
Með bestu kveðjum, Dalla Þórðardóttir