Fyrirhuguð messa í Öskjuhlíð fellur niður
Í ljósi viðvarana frá veðurfræðingum sem spá gulri viðvörun, grenjandi rigningu og roki á sunnudag verður fyrirhuguð messa í Öskjuhlíð felld niður.
Í ljósi viðvarana frá veðurfræðingum sem spá gulri viðvörun, grenjandi rigningu og roki á sunnudag verður fyrirhuguð messa í Öskjuhlíð felld niður.
Gleðilegt haust. Það er rétt að koma segir fólk. En enn er sumar.
Dag eftir dag er góða veðrið sem við vöknum til og sofnum frá.
Við þökkum Guði hvern dag. Og njótum daganna. Við byrjum
messurnar okkar og höldum svo áfram. Eins og við höldum
áfram með gleðina frá góða sumrinu sem var eins og öll sumur
voru þegar við vorum litlar og lékum okkur alla daga. Leikum
okkur líka núna eins og við getum, mitt í ábyrgð okkar og alls
sem við þurfum að gera. Ef við leikum okkur líka verður öll
vinnan svo miklu betri. Gleðjum yfir trú okkar á Guð vinkonu
okkar. Hún brallar svo.
Blíðar kveðjur, Auður
Sunnudaginn 25. ágúst klukkan fimm, klukkan 17 höfum við fyrstu messuna okkar í byrjun haustsins. Við hittumst fyrir framan Perluna og fáum okkur gönguferð um Öskjuhlíðina og stoppum við og við til að syngja og biðja og lesa saman úr Biblíunni og höfum ofurlitla hugleiðingu einhvers staðar. Svo förum við í kaffi í Perluna og tölum saman. Verum allar innilega velkomnar.
Þann 19. júní verðu messa Kvennakirkjunnar við Kjarvalsstaði klukkan 20. Það verður Söngmessa með Aðalheiði Þorsteinsdóttur og Önnu Sigríði Helgadóttur og prédikun séra Auðar Eir Vilhjálmsdóttur. Verið öll hjartanlega velkomin!
Það er innileg ósk okkar að við höfum allar átt gleðilega páska og fundið nálægð Guðs í hjarta okkar. Við skulum biðja hver fyrir annarri og vita að það er beðið fyrir okkur.
Við höfum fylgst með páskadögunum öllum, öllu sem Jesús og vinkonur hans og vinir gengu í gegnum á leiðinni til Jerúsalem þegar Jesús sagði þeim að hann myndi deyja. Við lásum um
hugarró hans á dögunum í Jerúsalem þegar hann hélt áfram predikun sinni þótt hann vissi hvað var í vændum. Við lásum um samveruna við síðustu kvöldmáltíðina, handtökuna, dómsmeðferðina hjá Gyðingum og Rómverjum og krossfestinguna. Og upprisuna á páskamorgun þegar Jesús hitti konurnar við gröfina og sagði þeim fagnaðarerindið sem breytti öllu í huga og lífi hópsins hans og svo allra þeirra sem áttu eftir að heyra og lifa upprisuna í eigin lífi.
Við höfum allar fundið gleði kristinnar trúar og finnum hana í hverjum degi okkar, þeim sem eru glaðlegir og þeim sem eru erfiðir og geta verið óskiljanlegir. Guð blessar okkur eins og alltaf og talar við okkur í Orðinu og lífinu. Guð blessar þig og allt sem þú felur henni. Hún blessar okkur allar saman og styður okkur í predikun okkar.
Blíðar kveðjur, Auður
Allt starf okkar í Kvennakirkjunni er byggt á kvennaguðfræðinni sem við höfum lesið saman öll okkar ár og fjallað um á margvíslegan hátt.
Kvennaguðfræðin var umfangsmikil og áhrifarík á tveimur síðustu öldum og alltaf hluti af allri kvennahreyfingunni. Kvennahreyfingin barðist fyrir rétti, sjálfstæði og sjálfsmynd kvenna og gegn kúguninni sem konur þoldu um allar aldir.
Kúgunin var rakin til Biblíunnar og kvennaguðfræðin rannsakaði málið. Það var augljóst að ásökunin var rétt og konur sögðu sig úr kirkjunni.
Það var líka augljóst að kvenfyrirlitning Biblíunnar kom aldrei nokkurn tíma frá Guði heldur frá þeim tímum þegar Biblían var skrifuð. Kvennaguðfræðingar kirkjunnar skrifuðu mikla guðfræði um eilifa samstöðu Guðs sem konum í þjáningu þeirra og órétti sem birtist í Biblíunni á öllum öldum. Þær sáu og skrifuðu um frelsun Guðs. Kirkjan hefur alltaf safnað fólki sínu saman til
biblíulestra til að styrkjast og fagna.
Guðþjónusta Kvennakirkjunnar verður að þessu sinni í stofum okkar í Þingholtsstræti 17, 28. apríl kl. 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar. Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar söng okkar
og við höldum messuna allar saman.
Þær sem sjá sér fært að færa kaffibrauð fá alúðarþakkir
Á mánudaginn kemur, 25. mars byrjum við námskeið um kvíðann, þessa yfirþyrmandi ógn aldarinnar. Við mætum henni núna með samtali um fyrirgefninguna. Við lesum fyrst bók prestanna í Suður Afríku Mpho og Desmond Tutu en hann var biskup þar. Svo bröllum við fleira.
Námskeiðið er í stofum okkar á jarðhæð í Þingholtsstræti 17 og hefst klukkan hálf fimm og stendur til sex. Það verður yndislegt og ókeypis og með kaffi. Komdu endilega ef þig langar og kemst.
Það er alltaf ráðlagt að huga að hugsunum okkar og líðan og ekki síst nú á föstunni. Þá hugum við meira en aðra daga að lífi Jesú á dögum hans á leið til Jerúsalem, krossfestingarinnar og upprisunnar. Hann mætti því sem var óhjákvæmilegt, gekk í gegnum það að sigraði það.
Við erum hvattar til að hugsa um það sem hefur verið okkur erfitt á okkar eigin lífsgöngu og sjá að eins og Jesús sigraði býður hann okkur að sigra. Hann býður okkur huggun og styrk og hugrekki og gleði til að halda áfram.
Jesús sagði við lamaða manninn að hann skyldi taka sæng sína og ganga. Mér finns það geta þýtt fyrir okkur að við skulum taka að okkur vandamál okkar og gera þau viðráðanleg og halda áfram. Við höldum áfram að vita af mótlætinu en það ræður ekki ferðinni heldur ráðum við sjálfar.
Jesús sagði líka að við skyldum hrista rykið af fótum okkar. Við skulum skilja mótlætið eftir og hugsa ekki meira um það.
Jesús býður okkur ýmsar lausnir. Af því að lífið er ýmiskonar og við mætum því á ýmsan hátt. Hann býður okkur alltafað vera hjá okkur og gefa okkur allt sem við þurfum.
Það er mesta lífshamingja okkar og undirstaða allrar hamingju að vita það.
Blíðar kveðjur, Auður
Guðþjónusta Kvennakirkjunnar í mars mánuði verður sunnudagskvöldið 17. mars kl. 20 í Grensáskirkju. Séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir predikar. Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar söng okkar. Við komum saman, drekkum saman kaffi og gleðjumst og fögnum.
Þær sem sjá sér fært að færa góðgerðir fá alúðar þakkir